Um spilliefni
Hluti þess sorps sem kemur frá heimilum og fyrirtækjum inniheldur efni sem geta verið lífríkinu hættuleg og skaðleg mönnum og dýrum og nefnast því umhverfisspillandi úrgangur eða spilliefni. Jákvæð þróun og meiri meðvitund gagnvart meðhöndlun úrgangs og spilliefna hefur breyst til hins betra undanfarin ár. Meðal almennings og stjórnvalda er gerð aukin krafa um að vernda náttúru landsins og bæta meðhöndlun úrgangs. Fyrsta skrefið í því er að ná spilliefnum frá öðrum úrgangi. Heimili, fyrirtæki og stofnanir þurfa öll að bera ábyrgð á umhverfinu og hluti af þeirri ábyrgð felst í skynsamlegri meðferð á spilliefnum. Samkvæmt lögum ber almenningi, fyrirtækjum og stofnunum skylda til að afhenda allan spilliefnaúrgang til viðurkenndra móttökuaðila spilliefna. Starfsleyfi fyrirtækja eru háð skilyrðum sértækra reglugerða frá árinu 1999, númer 785-810 en þar er kveðið á um frágang spilliefna. Reglugerðirnar er að finna á www.reglugerd.is.
Spilliefni mega ekki undir neinum kringumstæðum fara í almennt sorp eða út í holræsakerfið. Það má því hvorki urða spilliefni né losa í sjó.
