Greiðsla

Efni sem skilað er til Efnamóttökunnar hf. eru vigtuð við móttöku þeirra og þyngd með umbúðum og efnaheiti er skráð á sérstaka móttökuseðla. Reikningur fyrir þjónustuna byggir á skráðum upplýsingum á móttökuseðli og er vísað í númer hans við innheimtu. Eyðingargjald spilliefna sem bera spilliefnagjald er greitt af Úrvinnslusjóði.

Bent er á að án beiðni er flutningsaðili ábyrgur fyrir greiðslu eyðingargjalds.

Ný gjaldskrá Efnamóttökunnar hf. tók gildi 1.júlí 2011.